Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Svar við spurningu gærdagsins

HamrarJæja ekki voru margir sem svöruðu spurningu dagsins sem ég birti í gær.  Ég þakka Jakobi Kristinssyni viðleitnina, en hann taldi að myndin væri annaðhvort tekin í Borgarfirðinum eða á Vestfjörðum.  Ef ég hefði ekki sjálfur tekið myndina hefði ég líklegast einnig getið mér þess til að myndin væri tekin á Vestfjörðum.  Fjallið er virkilega Vestfjarðalegt frá þessu sjónarhorni.  Svarið við spurningu dagsins er hinsvegar að myndin er tekin ofarlega í skógræktinni að Mógilsá og er af Kistufellinu í Esjunni.  Með svarinu við spurningu gærdagsins birti ég aðra mynd sem tekin var sama dag og er af hömrunum á milli Þverfellshorns og Kistufells, en ég hef bara ekki hugmynd um hvað þeir heita.  Ef einhver sem þetta les veit hvað þeir heita má hann eða hún gjarnan láta ljós sitt skína í athugasemdum við þetta blogg.

 

Óvenjuleg sjón – Hrafnslaupur í rafmagnsmastri

hrafn2Á ferð um suðurland í gær, ókum við framhjá þessum hrafnslaup hátt í rafmagnsmastri.  Ég hef ekki séð slíka staðsetningu áður og skil ekki hvernig hrafninum hefur tekist að raða saman laup sínum á þessum stað.


Höfundur

Egill Helgason
Egill Helgason
Höfundur er oft hugsi yfir ýmsu.  Klórar sér oft í höfðinu.  Finnst alveg svakalega margt, en er dapurlega latur við að blogga.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband