Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Skipulagsmistök í uppsiglingu

Álafosskvos yfirlitsmyndÉg hef verið búsettur í Mosfellsbæ nú í haust í 9 ár.  Fljótlega eftir að ég flutti uppgötvaði ég Álafosskvosina, sem frábæran stað til að vera á, þó ég reyndar búi í allnokkurri fjarlægð frá henni.  Ganga frá íþróttahúsinu eða miðbæ Mosfellsbæjar uppí Álafosskvos og uppfyrir hana er einhver skemmtilegasta ganga sem hægt er að fara í bænum.  Þar sem miðbæjar-, íþrótta- og hlégarðssvæðið mæta svæðinu neðan Álafosskvosar í kvosinni við Vesturlandsveg má segja að að sé miðja bæjarins en þar er nú þvi miður fyrirhugað að að setja mislæg gatnamót í tengslum við fyrirhugaða legu Helgafellsbrautar.   Þar sem þetta svæði er að því er mér finnst bæði fallegasta svæði bæjarins og miðja bæjarins finnst mér stórslys svo ekki sé meira sagt ef þarna verða mislæg gatnamót.  Það hefur farið meira fyrir umræðu um verndun Álafosskvosarinnar sjálfrar en minna um mislægu gatnamótin sem koma til með að þurfa að verða á þessum Helgafellsvegi og Vesturlandsvegi, en með tilkomu þeirra erum við komin með fyriferðarmikil mislæg gatnamót á besta stað í miðju bæjarins, sem í raun slíta mögulega skemmtilega þróun á þessu svæði í sundur.  Ég held að fáir hafi gert sér grein fyrir þessu.  Ég fyrir mitt leyti ætla rétt að vona að það komi til með að fara fram íbúakosning í Mosfellsbæ um þetta mjög svo eldfima mál.  Í þau 9 ár sem ég hef búið í bænum hefur aldrei komið upp viðlíka deilumál svo ég muni eftir og ekki nema eðlilegt að fram fari íbúakosning um valmöguleika í stöðunni.  Á þeim myndum sem hafa verið lagðar fram til kynningar á framkvæmdinni man ég ekki eftir að hafa séð útfærslu á mislægu gatnamótunum enda væntanlega reynt að gera sem minnst úr vægi þeirra.  Á myndinni sem fylgir hér með sjást þessi mislægu gatnamót einmitt ekki.


mbl.is Kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda við endurnýjun fráveitulagna meðfram Varmá hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórkostlegt framtak

Stórkostlegt framtak Sýslumannsins á Selfossi að ætla að gera mótorhjól ökunýðinga upptæk.  Mér finnst það reyndar ganga of skammt og tel að menn sem verða uppvísir að glæfraakstri á allt að 200 kílómetra hraða eigi jafn mikið skilið fangelsisdóm og maður sem skýtur í allar áttir úr haglabyssu á almannafæri.

 

Ég velti því fyrir mér hvernig maður eigi að taka margbirtum auglýsingum mótórhjólamanna undanfarna mánuði um að taka tillit til þeirra í umferðinni, þegar tillitsleysi stórs hluta þeirra sjálfra virðist algjört gagnvart öðrum borgurum í umferðinni.  Ég velti því líka fyrir mér hvort það sé ekki af tillittsemi við samborgarana að það virðist vinsælast í dag meðal mótorhjólamanna að hávaðinn frá mótorhjóli þeirra sé sem allra mestur.   Kærar þakkir fyrir það !  Það er nefninlega svo yndislega gaman að hafa mótorhjóladrunur í eyrunum hvenær sem er dags eða nætur.

 

Sorry en fyrir mér er í  bara að verða samansemmerki á milli mótorhjólamanna, ofbeldis og glæpamanna.


mbl.is Vill að mótorhjólin verði gerð upptæk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Egill Helgason á blog.is

Þrátt fyrir að hafa ekki uppfært síðuna mína nokkurn tíma sé ég að heimsóknum á hana fer fjölgandi og án efa vegna nafnaruglings, því nú hefur hinn stórfrægi nafni minn Egill Helgason Blaðamaður byrjað að blogga hér á blog.is.   Ég er þó nokkuð viss um að Egill Blaðamaður Helgason hefur eitthvert millinafn, þó reyndar sé það ekki Blaðamaður.  Það væri ágætt ef hann væri til í að nota það til aðgreiningar frá mér.  Í gegnum tíðina hef ég bæði haft gaman af og ekki af nafnaruglingi við Egil Helgason Blaðamann.  Það byrjaði fyrir tíu til fimmtán árum síðan með símhringingu frá Berki nokkrum Gunnarssyni.  Við Börkur höfðum verið saman í árgangi í Versló og ekki meira en rétt málkunnugir og liðin nokkur ár frá því við útskrifuðumst.  Ég var síst að skilja hvað Börkur vildi mér, en hann var hinn hressasti og kjaftaði í honum hver tuska og sagði mér óstöðvandi frá ferð sinni sem blaðamanns til Júgóslavíu, en ég braut heilann um hvað í ósköpunum hann vildi mér.  En sögunum lauk og Börkur spurði mig um greinina mína í Helgarpóstinum.  Ég varð undrandi og svaraði honum að hann væri nú varla að tala við réttan Egil Helgason.  Honum varð mikið um og kvaddi 1-2 og 3, án þess svo mikið að fá útskýringu á af hverju ég kannaðist við hann.  Nokkru síðar hringdi maður sem var mikið niðri fyrir og spurði hvort ég væri Egill Helgason.  Ég játti því.  Sagði hann þá að hann væri alls ekki sáttur við mig.  Mér krossbrá – hvað hafði ég nú gert !  Hann var alls ekki sáttur við kvikmyndagagnrýni mína í Helgarpóstinum.  Mér létti stórum og útskýrði fyrir honum að hann væri ekki að tala við réttan Egil Helgason.  Við það æstist hann enn meir og sagði að ég skyldi sko ekki halda að ég kæmist svona frá þessu, hann hefði nefninlega fengið númerið mitt uppgefið hjá Helgarpóstinum.  Áttum við lengra samtal þar sem ég marg reyndi að útskýra málið en hann var nær óður yfir hvernig ég átti að hafa farið gríðarlega ósanngjörnum orðum um einhvern uppáhalds leikara hans.  Á endanum var ég búinn að fá nóg og sagði við manninn að ég hefði bara verið í vondu skapi þegar ég fór á myndina og hefði bara aldrei getað þolað viðkomandi leikara og hann yrði bara að hafa það.  Fleiri símtöl fékk ég næstu árin, yfirleitt frá ágætu fólki, en líka alveg verulega skrítnu.   Sem betur fer hefur dregið mikið úr þessum nafnaruglingi hin síðari ár þó af og til fái ég enn svona símtöl.  Þó flest þessara símtala hafi verið tíðindalítil eða hálf óskemmtileg fékk ég fyrir nokkrum árum mjög skemmtilegt símtal frá Ólafi F Magnússyni, sem vert er að minnast á.   Síminn hringdi og ég svaraði bara halló og Ólafur spyr hvort ég sé Egill Helgason, ég játti því.  Hann segir þá ,,ja það er bara ekkert mál að ná í þig”,  ,,ha – nei, af hverju ætti það að vera” segi ég undrandi,  ,,nei maður myndi halda að jafn frægur maður og þú hefði einhvern buffer”, segir Ólafur og kynnir sig.  Ég svara þá ,,Nei heyrðu Ólafur veistu þú ert ekki að tala við réttan Egil Helgason”.  Það kom nokkuð á Ólaf sem var alveg sannfærður um að ég væri Egill Blaðamaður Helgason að stríða honum og þurfti ég að beita nokkrum sannfæringarkrafti til að fá hann til að trúa því að ég væri ekki sá sem hann hélt mig vera.  Eftir nokkurn tíma sannfærðist hann þó og hlógum við báðir að þessari spaugilegu uppákomu.


Meiri forsjárhyggju

Mikið er ég ánægður þessa dagana með nýtilkomið reykingabann á veitingastöðum.  Frábært að þurfa ekki að anda að sér eiturlofti eða að anga eins og öskubakki eftir heimsókn á veitingastað.  En ekki stendur nú á frelsisbullurunum þessa dagana að rakka reykingabannið niður og fara miklum neikvæðum orðum um forsjárhyggju ríkisvaldsins og skerðingum á frelsi einstaklingsins.  Rök þessara aðila eru því miður eins og ólundarlegra smákrakka og enginn má hafa vit fyrir öðrum.  Ég er hinsvegar svo ánægður með að á mörgum sviðum sé haft vit fyrir mér.  Því þó ég sé nú nokkuð vel upplýstur þá þyrfti ég að hafa mig allan við ef ekki nyti við forsjárhyggju þar sem ýmislegt er leyft en annað bannað.  Hversu stórt hlutfall reykingafólks ætli óski þess að það hefði aldrei byrjað að reykja?  Það held ég að sé býsna stórt hlutfall.  Ég hef í gegnum tíðina þekkt marga sem hafa haft mikið fyrir því að hætta að reykja og nokkra þekki ég sem hafa reynt og reynt að hætta en bara geta það ekki.  Reykingar eru heldur ekki einkamál neins hvorki á opinberum stöðum né öðrum, þar sem kostnaðurinn við heilsutap reykingamannsins fellur á samfélagið allt.   Vona nú bara að stjórnvöld sýni sem fyrst meiri forsjárhyggju og veiti sígarettunni náðarhöggið með banni  við sölu sígaretta.


Höfundur

Egill Helgason
Egill Helgason
Höfundur er oft hugsi yfir ýmsu.  Klórar sér oft í höfðinu.  Finnst alveg svakalega margt, en er dapurlega latur við að blogga.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband