12.11.2009 | 12:50
Hækkun tekjuskatts prósentu vinnuhvetjandi en ekki letjandi
Það er vinsælt þessa dagana að halda því fram að hækkun tekjuskattsprósentu sé vinnuletjandi og verði þess valdandi að folk vinni minna. Það þurfi engan kjarnorkueðlisfræðing til að sjá það. Velti hinsvegar fyrir mér hvort hægt sé að vísa í einhvern hagfræðing þessu til stuðnings frekar en kjarnorkueðlisfræðing. Staðreyndin er hinsvegar sú að hærri tekjuskatts prósenta leiðir til lægri nettó launa í vasann, sem hlýtur þá mun frekar að leiða til þess að venjulegt fólk þurfi að vinna meira en ekki minna til að endar nái saman. Hækkun tekjuskattsprósentu hlýtur því að vera vinnuhvetjandi en ekki letjandi.
Ég ætla einnig að leyfa mér að halda því fram að þó fólk hafi vel til hnífs og skeiðar þá eftir því sem fólk hefur hærri laun þá vinni það minna en ekki öfugt, nema það vinni bara ánægjunnar vegna og þá skipta skattar líka engu máli.
Þrepaskipt skattprósenta held ég hinsvegar að geti verið varasamt fyrirbæri og virkað vinnuletjandi fyrir þá sem eru við þrepamörkin.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2009 | 17:05
Nígeríumenn Norðursins
Ævistarfið farið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2009 | 17:11
Gætum við endað svona ?
Grísir soðnir lifandi í Svíþjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2009 | 09:14
Samfylkingin kúgaðist
Samfylkingin bugaðist" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.11.2008 | 16:46
Til hagsbótar fyrir hvern ?
Hámarksgildi koffíns í drykkjarvörum fellt niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.9.2008 | 16:41
Sprengjum bara það sem okkur sýnist
Það er bara ekkert tillit tekið til okkar sprengjuáhugamanna og því eru menn bara að sprengja í tætlur það sem þeim sýnist. Ríkið tekur af okkur skatta og gjöld, en kemur ekkert til móts við okkur t.d. með því að skaffa okkur byggingar eða landsvæði til sprenginga Það hefur orðið sprenging í fjölda sprengjuáhugamanna undanfarin ár og það eru ekki bara menn sem sprengja í dag á gamlárskvöld heldur er þetta bara orðið áhugamál og lífstíll fjölda manna allt árið um kring. Það bara verður að koma til móts við þennan hóp. Að kalla okkur skemmdarvarga er bara alger dónaskapur meðan ekkert tillit er tekið til okkar.
Fordæma akstur utan vega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2008 | 15:21
Vorkenni þeim ekkert
Ég vona að síðastliðnir dagar hafi fengið Íslendinga til að hugsa sig aðeins um og líta í eigin barm. Hvort þeir þurfi virkilega að eiga jafn stóra og eyðslufreka bíla og þeir eiga. Um síðustu helgi var í heimsókn hjá mér mikilsmetinn Finni, sem ferðast hefur vegna vinnu sinnar meira eða minna um allan heiminn. Hann gat ekki stillt sig um að láta í ljós undrun sína yfir bílaflota landsmanna og þá sérstaklega hvað varðar risa pallbíla og fjölda fjórhjóladrifinna ökutækja. Þetta var ekki hrifningarundrun. Ég get ekki sagt að ég hafi samúð með 4x4 mönnum sem voru að mótmæla og keyra um götur borgarinnar á fáránlega stórum og eyðslufrekum ökutækjum sínum, sem mörg hver taka allt að fjórum bílastæðum þegar þeim er lagt. Einnig hef ég enga samúð með vöruflutningabílstjórum. Óheyrilegur rekstrarkostnaður vegakerfisins er algerlega af þeirra völdum. Einn flutningabíll er víst að slíta vegununum á við 30.000 fólksbíla. Einnig hefur þurft að enduruppbyggja þjóðvegi landsins til að þola hinn gríðarlega öxulþunga þessara bifreiða, sem fara sívaxandi í stærð og þyngd. Ég vona bara að hærra eldsneytisverð verði til þess að frekar verði hugað að sjóflutningum, en í þann flutningsfarveg mætti einmitt gjarnan beina flutningum. Það er án efa þjóðhagslega mun hagkvæmara, þar sem því fylgir minni viðhalds og uppbyggingarkostnaður vega landsins.
Bensínverð lægst á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.9.2007 | 10:57
Svar við spurningu gærdagsins
Jæja ekki voru margir sem svöruðu spurningu dagsins sem ég birti í gær. Ég þakka Jakobi Kristinssyni viðleitnina, en hann taldi að myndin væri annaðhvort tekin í Borgarfirðinum eða á Vestfjörðum. Ef ég hefði ekki sjálfur tekið myndina hefði ég líklegast einnig getið mér þess til að myndin væri tekin á Vestfjörðum. Fjallið er virkilega Vestfjarðalegt frá þessu sjónarhorni. Svarið við spurningu dagsins er hinsvegar að myndin er tekin ofarlega í skógræktinni að Mógilsá og er af Kistufellinu í Esjunni. Með svarinu við spurningu gærdagsins birti ég aðra mynd sem tekin var sama dag og er af hömrunum á milli Þverfellshorns og Kistufells, en ég hef bara ekki hugmynd um hvað þeir heita. Ef einhver sem þetta les veit hvað þeir heita má hann eða hún gjarnan láta ljós sitt skína í athugasemdum við þetta blogg.
21.9.2007 | 14:13
Spurning dagsins
Jæja ég hef verið afspyrnu latur að blogga um mjög langt skeið. Reyndar hef ég haft yfirdrifið nóg að gera. Jæja en hvað um það. Um síðustu helgi fékk ég mér skemmtilegan göngutúr í fallegu umhverfi og haustið skartaði sínu fegursta. Ég tók margar myndir og setti eina þeirra sem skjámynd í tölvuna mína í vinnunni. Ýmsir hafa kommentað á myndina og spurt hvar hún sé tekin. Enginn hefur hinsvegar viljað trúa svarinu. Ég ætla því að leyfa öðrum að njóta myndarinnar en spurning dagsins er sem sagt hvar er myndin tekin ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2007 | 16:51
Skipulagsmistök í uppsiglingu
Ég hef verið búsettur í Mosfellsbæ nú í haust í 9 ár. Fljótlega eftir að ég flutti uppgötvaði ég Álafosskvosina, sem frábæran stað til að vera á, þó ég reyndar búi í allnokkurri fjarlægð frá henni. Ganga frá íþróttahúsinu eða miðbæ Mosfellsbæjar uppí Álafosskvos og uppfyrir hana er einhver skemmtilegasta ganga sem hægt er að fara í bænum. Þar sem miðbæjar-, íþrótta- og hlégarðssvæðið mæta svæðinu neðan Álafosskvosar í kvosinni við Vesturlandsveg má segja að að sé miðja bæjarins en þar er nú þvi miður fyrirhugað að að setja mislæg gatnamót í tengslum við fyrirhugaða legu Helgafellsbrautar. Þar sem þetta svæði er að því er mér finnst bæði fallegasta svæði bæjarins og miðja bæjarins finnst mér stórslys svo ekki sé meira sagt ef þarna verða mislæg gatnamót. Það hefur farið meira fyrir umræðu um verndun Álafosskvosarinnar sjálfrar en minna um mislægu gatnamótin sem koma til með að þurfa að verða á þessum Helgafellsvegi og Vesturlandsvegi, en með tilkomu þeirra erum við komin með fyriferðarmikil mislæg gatnamót á besta stað í miðju bæjarins, sem í raun slíta mögulega skemmtilega þróun á þessu svæði í sundur. Ég held að fáir hafi gert sér grein fyrir þessu. Ég fyrir mitt leyti ætla rétt að vona að það komi til með að fara fram íbúakosning í Mosfellsbæ um þetta mjög svo eldfima mál. Í þau 9 ár sem ég hef búið í bænum hefur aldrei komið upp viðlíka deilumál svo ég muni eftir og ekki nema eðlilegt að fram fari íbúakosning um valmöguleika í stöðunni. Á þeim myndum sem hafa verið lagðar fram til kynningar á framkvæmdinni man ég ekki eftir að hafa séð útfærslu á mislægu gatnamótunum enda væntanlega reynt að gera sem minnst úr vægi þeirra. Á myndinni sem fylgir hér með sjást þessi mislægu gatnamót einmitt ekki.
Kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda við endurnýjun fráveitulagna meðfram Varmá hafnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Af mbl.is
Íþróttir
- Snýr aftur til Íslandsmeistaranna
- Tap gegn Englandi í átta marka leik
- Ósáttur hjá franska stórliðinu
- Ótrúleg VAR mistök í Þjóðadeildinni
- Enn meiðsli hjá íslenska landsliðsmanninum
- Steinlá gegn Víkingi en seldur fyrir metfé
- Áfall fyrir Liverpool-leikinn
- Orri Steinn frá keppni vegna meiðsla
- Tveggja leikja bann fyrir illkvittna aðgerð
- Fyrirliðinn meiddur í annað sinn á tímabilinu